Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi samgönguráðherra, segir nýja Ölfusárbrú allt of dýra í þeirri mynd sem hún er áformuð og fullyrðir að hægt sé að smíða einfaldari brú á mun skemmri tíma fyrir þriðjung af kostnaðinum.
Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en áform um smíði nýrrar Ölfusárbrúar eru í uppnámi. Ástæðan er sú að illa gengur að mæta því skilyrði Alþingis að veggjöld standi undir kostnaði, sem Jón segir áætlað að verði á annan tug milljarða króna.
„Ég tel að svona stórkarlaleg framkvæmd, eins og hún blasir við okkur þarna, muni taka mjög langan tíma. Hún verður erfið í fjármögnun og veggjöld verða hlutfallslega mjög dýr yfir hana.
Mín skoðun er sú að menn eigi bara að girða sig í brók, byggja þarna venjulega brú, sem mun kosta sennilega innan við þriðjung, jafnvel fjórðung, af þessu mannvirki sem þarna á að rísa,” segir þingmaðurinn og bendir á að ódýrari brú þýddi lægri veggjöld.
„Ég ætla bara að fullyrða það að ef menn bjóða slíkt verkefni út, fyrr en síðar, þá verði sú brú risin á undan þessu mannvirki. Það er gríðarlega mikilvægt að komast af stað í þessu.”
Jón sér fyrir sér brú í stíl Borgarfjarðarbrúar eða nýju brúarinnar yfir Þorskafjörð en verksamningur um smíði hennar, ásamt tengdri vegagerð, hljóðaði upp á 2,2 milljarða króna.
„Er einhver að kvarta undan því að Borgarfjarðarbrú sé eitthvað ljót? Nei, hún sinnir hlutverki sínu, er góð samgöngubót, var gríðarlega góð samgöngubót á sínum tíma. Þannig getur brúin yfir Ölfusá verið líka og kostað skattborgarana margfalt minna fé.”
-En hvernig getur þú fullyrt það að það sé hægt að gera brú þarna fyrir þriðjung af verði þessarar?
„Það er bara vegna þess að við höfum setið með brúarverkfræðingum yfir því og skoðað það í grunninn, ég ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Og það er hægt að byggja slíka brú fyrir þrjá til þrjá og hálfan milljarð. Þá eru byggðar tvær brýr, sitt hvorumegin út í eyjuna, ekki eitt haf, og svo vegstubbur yfir eyjuna.
Það er bara brúarsmíði sem við þekkjum vel og er auðvelt að reikna út,” svarar Jón og segir skynsamlegra að hætta við smíði svona stórbrúar þótt undirbúningur hafi kostað mikið fé.
„Þó að það sé sokkinn kostnaður í því upp á nokkur hundruð milljónir þá er það bara brot af því sem heildarkostnaðurinn verður. Og mismunurinn er það stórkostlega mikill að við verðum bara að viðurkenna það að svona hugmyndir… við höfum bara ekki efni á þeim í dag,” segir Jón Gunnarsson, alþingismaður og fyrrverandi samgönguráðherra.
Heimild: Visir.is