Home Fréttir Í fréttum „Orð­laus af reiði“ yfir ó­boð­legu leik­skóla­hús­næði í Ár­múla

„Orð­laus af reiði“ yfir ó­boð­legu leik­skóla­hús­næði í Ár­múla

54
0
Elísabet segir að foreldrum hafi brugðið verulega þegar þau sáu aðstæðurnar við húsnæðið í Ármúla. Þó skal tekið fram að áfram verður unnið að því næstu vikur að gera standsetja svæðið fyrir leikskólastarfsemi. VÍSIR

Foreldri barns í leikskólanum Brákarborg kveðst orðlaus af reiði og ekki vita hvað hún eigi að gera, en til stendur að færa starfsemi leikskólans tímabundið yfir í skrifstofuhúsnæði í Ármúla, sem hún segir óboðlegt leikskólabörnum. Í gær barst foreldrum póstur um að framkvæmdir yrðu í húsnæði Brákarborgar í ótilgreindan tíma, og starfsemi skólans yrði færð yfir í Ármúlann á meðan.

<>

Leikskólinn Brákarborg opnaði síðsumars 2022 við Kleppsveg, þar sem áður var húsnæði Adams og Evu, og hlaut þá hönnunarverðlaunin Grænu skófluna. Ýmsum foreldrum gramdist verðlaunaveitingin vegna þess að skólinn var þá ekki enn tilbúinn.

Síðar kom í ljós að mistök hefðu verið gerð við byggingu hússins, reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þaki skólans hafi verið meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast.

Ósátt við skort á upplýsingum
Elísabet Erlendsdóttir, foreldri barns á Brákarborg, segir upplýsingagjöf borgarinnar ekki ásættanlega. „Ég er ósátt við skort á upplýsingum sem koma. Það er enginn tímalína, ég gat ekki skilið hvað nákvæmlega þarf að gera. Þarf að skipta um þakið, þarf að rífa allt klabbið, það virðist enginn vita það,“ segir Elísabet.

Hún kveðst hafa verið lengi í „peppliði nýju Brákarborgar.“ Auðvitað hafi verið vaxtaverkir þegar verið væri að opna nýjan leikskóla sem er miklu stærri en sá gamli. Pósturinn í gær hafi hins vegar klárað síðustu orkudropana sem hún átti inni.

Hún segir að henni hafi fallist hendur þegar hún sá myndir af húsnæðinu í Ármúla, sem til stendur að hafa starfsemina í. Það sé talað um að verið sé að standsetja húsnæðið fyrir leikskólabörn, en það líti sem stendur alls ekki út fyrir að geta tekið á móti leikskólabörnum. Eitt foreldrið hafi kommentað undir mynd af húsnæðinu „er þetta Litla-hraun?“

„Þarna er bara svona stálgrind, enginn gróður, enginn mold. Allt aðgengi er erfitt, fyrir bíla og bara alla ferðamáta að þessu húsnæði,“ segir Elísabet.

Hættu við að senda sjötta bekk í Ármúlann
Húsnæðið sem um ræðir er í Ármúla 28-30 og hefur áður hýst grunnskólastarfsemi. Um 400 Hagskælingar þurftu að vera við nám í húsnæðinu í um tvö ár vegna myglu í Hagaskóla.

Elísabet segir að síðasta vetur hafi staðið til að færa sjötta bekk í Langholtsskóla yfir í þetta Ármúlahúsnæði, en það hafi ekki gengið eftir vegna mótmæla foreldra. Þeim hafi fundist húsnæðið óásættanlegt fyrir börn í sjötta bekk. Sjálf á hún stjúpson sem var í sjötta bekk í Langholtsskóla í fyrra.

„Miðað við hraðann og kröfurnar í samfélaginu, maður er að halda á svo mörgum boltum, maður hugsar bara úff hvað er ég að gera. Ætti maður bara að kaupa jörð og hefja sjálfsþurftarbúskap, og hafa börnin bara heima?“ segir Elísabet.

Reglulegar ábendingar um lélegar lagfæringar á vegum borgarinnar
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að hún fái orðið „reglulega ábendingar frá fagfólki í feltinu um fúsk, lélegar lagfæringar og vinnubrögð við verklegar framkvæmdir á vegum borgarinnar.“

Hún hafi nýlega fengið ábendingu frá húsasmið vegna lagfæringa á gluggum á leikskóla barns hans, sem voru að hans mati það lélegar að beinlínis væri verið að búa til kjörlendi fyrir myglu og rakaskemmdir.

Heimild: Visir.is