Home Fréttir Í fréttum 30.07.2024 Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging Veggklæðningar og ísetning glugga, glerveggja og...

30.07.2024 Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging Veggklæðningar og ísetning glugga, glerveggja og hurða

87
0

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging Veggklæðningar og ísetning glugga, glerveggja og hurða.

<>

Rangárþing ytra er að byggja 2700m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslu eldhús, hátíðarsal, bókasafn, tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik-og grunnskóla.

Verkið snýst um ísetningu á Reyaners álgluggum og glerveggjum með hurðum sem verkkaupi afhendir í verkið. Einnig er óskað eftir verðum utanhúss klæðningu, efni og vinnu frágenginni samkvæmt verklýsingu.

Gögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum. Útboðsgögn verða afhent frá mánudeginum 15. júlí.

Verkið skal vinnast frá 15.08.2024 og vera að fullu lokið 30.06.2025

Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en þriðjudaginn 30. júlí 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.

 

Helstu magntölur eru:

ÚV-CA – Útveggjaklæðning – Báruál 796
Álpanelklæðning við útbyggða glugga 75
Einangrun útveggja við útbyggða glugga 40
Uppbygging í kringum útbyggða glugga 8 stk
Álpanelklæðning við þakglugga og loftræstingu á þaki 56
Reynars Masterline 8 gluggar 63 stk
Glerveggir og hurðir 25 stk

Þakgluggar 3 stk