Home Fréttir Í fréttum 09.04.2024 Yfirlagnir á Vestursvæði 2024, klæðing

09.04.2024 Yfirlagnir á Vestursvæði 2024, klæðing

68
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Vestursvæði með klæðingu árið 2024.

<>

Helstu magntölur eru:

  • Hjólfarafylling með klæðingu  10.000 m2
  • Klæðing, útlögn með þjálbiki 370.000 m2
  • Klæðing, útlögn með bikþeytu 10.000 m2
  • Klæðing, kíling, útlögn 20.000 m2
  • Klæðing, yfirsprautun 10.000 m2
  • Klæðing, flutningur steinefnis 135.000 m3* km
  • Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis  90.000 m3* km
  • Formerkingar, línur 60.000 m

Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 25. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign