Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir að hefjast við Geysi

Framkvæmdir að hefjast við Geysi

91
0
Aðgengi að hverasvæðinu verður að mestu óhindrað á framkvæmdatíma. Ljósmynd: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson

Framkvæmdir við aðstöðu ferðafólks við Geysi eru að hefjast og munu standa í vor og sumar.

<>

Ánæstu dögum hefjast framkvæmdir vegna uppbyggingar nýrra gönguleiða við náttúruvættið Geysi í Haukadal. Samkvæmt áætlunum verktaka munu þær standa yfir fram á haust.

Í tilkynningu á heimasíðu Framkvæmdasýslu Ríkiseigna segir að gönguleiðirnar muni auka öryggi gesta, bæta aðgengi og upplifun ásamt því að auðvelda stýringu flæðis gangandi gesta með tilliti til gróðurverndar.

„Framkvæmdunum getur fylgt bæði truflun fyrir gesti og jarðrask. Það er líklegt að sjá muni á gróðri í nágrenni gönguleiðanna á meðan á framkvæmdum stendur. Þess mun verða gætt eftir fremsta megni að halda raski í lágmarki og lagfæra eins og hægt er að framkvæmd lokinni,“ segir jafnframt í tilkynningu.

Landmótun sf. landslagsarkitektar hanna breytingar á Geysissvæðinu en framkvæmdir eru í höndum Wiium ehf. verktaka.

Fram kemur að aðgengi að hverasvæðinu verði að mestu óhindrað á framkvæmdatíma. Þó gæti þurft að takmarka aðgengi að hluta eftir framvindu verks.

Heimild: Vb.is