Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.04.2024 Rammasamningur Mosfellsbæjar um tímavinnu iðnaðarmanna

26.04.2024 Rammasamningur Mosfellsbæjar um tímavinnu iðnaðarmanna

256
0
Mynd: Mosfellsbær

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í :  „Rammasamning um tímavinnu iðnaðarmanna“

<>

Markmið útboðsins er að kaupa fjölbreytta þjónustu iðnaðarfólks í og við stofnanir, mannvirki og lóðir sveitarfélagsins Mosfellsbæjar á hagkvæmu verði og að uppfylltum kröfum um gæði þjónustunnar, m.a. með tilliti til eðlis þeirrar þjónustu sem sinnt er innan viðkomandi stofnana.

Útboði þessu er skipt upp í tíu flokka. Bjóða má í einn eða fleiri flokka útboðsins.

  • FLOKKUR 1 – RAFLAGNAVINNA
  • FLOKKUR 2 – PÍPULAGNAVINNA
  • FLOKKUR 3 – MÁLMIÐNAÐARVINNA
  • FLOKKUR 4 – MÚRVINNA
  • FLOKKUR 5 – MÁLNINGARVINNA
  • FLOKKUR 6 – TRÉSMÍÐI
  • FLOKKUR 7 – UMHIRÐA LÓÐA
  • FLOKKUR 8 – BLIKKSMÍÐI
  • FLOKKUR 9 – DÚKALÖGN
  • FLOKKUR 10 – RAFVÉLAVIRKJUN

Samningar ná til 31.12.2025 með möguleika á framlengingu til tveggja ára, eitt ár í senn.  Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Óska skal eftir útboðsgögnum með tölvupósti í gegnum mos@mos.is, útboðsgögn verða afhent frá og með 19. mars 2024.

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti á netfangið mos@mos.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði.  Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 föstudaginn 26. apríl 2024

Opnun tilboða fer fram rafrænt. Við opnun tilboða verða nöfn bjóðenda skráð í fundargerð og tilboðsfjárhæð í viðkomandi flokki af tilboðseyðublaði. Fundargerð opnunarfundar verður birt á mos.is og send á bjóðendur.

Útboð þetta er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu, sjá; 164081-2024 – Competition – TED (europa.eu)

Sjá frekar.