Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

Opnun útboðs: Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

268
0

Opnun tilboða 12. mars 2024. Hafnarstjórn Vopnafjarðar óskaði eftir tilboðum í verkið „Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil “.

<>

Helstu verkþættir eru:

· Dýpkun á klapparbotni, um 11.157 m3 og sprengd rás fyrir þil.

· Jarðvinna, fylling og þjöppun.

· Steypa 42 akkerissteina.

· Reka niður 106 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

· Steypa um 137 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2025.