Home Fréttir Í fréttum Bygging nýs leikskóla í undirbúningi á Blönduósi

Bygging nýs leikskóla í undirbúningi á Blönduósi

59
0
Barnabær á Blönduósi. Mynd: hunabyggd.is

Í undirbúningi er að byggja nýjan 685 fermetra leikskóla á Blönduósi sem staðsettur yrði norðan við núverandi leikskóla.

<>

Nýta á núverandi húsnæði áfram fyrir elstu árganga en því breytt, m.a. verður eldhúsi breytt í listasmiðju.

Nýbyggingin er ætluð fyrir yngri árganga ásamt móttökueldhúsi og matsal sem nýtist leikskólanum í heild ásamt starfsmannarými.

Breyta á skólalóð í tengslum við nýbygginguna og er gert ráð fyrir ungbarnaleiksvæði.

Þetta kemur fram í fundargerð fræðslunefndar Húnabyggðar. Þar segir að unnið sé að gerð útboðsgagna verkefnisins og að endanleg ákvörðun um framkvæmd þess bíði meðferðar sveitarstjórnar.

Heimild: Huni.is