Home Fréttir Í fréttum 21.03.2024 Akureyrarbær. Utanhússmálun, múrviðgerðir og sílanburður

21.03.2024 Akureyrarbær. Utanhússmálun, múrviðgerðir og sílanburður

35
0
Mynd: Akureyrarbær

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirfarandi eignum Akureyrarbæjar:

<>

Síðuskóla
Naustatjörn leikskóli
Hulduheimar Kot leikskóli
Akureyrarvöllur stúka
Ráðhús Akureyrarbæjar
Skógarlundur miðstöð virkni og hæfingar
Salka félagsmiðstöð fólksins Víðilundi 22

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar einnig eftir tilboðum í sílanburð á eftirfarandi eignum Akureyrarbæjar:

Hof menningarhús
Íþróttahús Giljaskóla
Þórsstúka

Útboðsgögn verða afhend á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar frá miðvikudeginum 6. mars 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hægt er að nálgast útboðsgögn vegna utanhússmálunar og múrviðgerða með því að smella HÉR!

Hægt er að nálgast útboðsgögn vegna sílanburðar með því að smella HÉR!

Útboðsgögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugáttinni eftir að búið er að sækja um gögnin og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 21. mars 2024 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Heimild: Akureyrarbær