Home Fréttir Í fréttum 09.04.2024 Efnisvinnslu á Vestursvæði 2024, Fossamelar

09.04.2024 Efnisvinnslu á Vestursvæði 2024, Fossamelar

66
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í námunni Fossamelar 2.

<>

Um er að ræða sprengt berg í efnishaug til vinnslu flokkaðs klæðingarefnis og hálkuvarnarsands.

Helstu magntölur: 

  • – Klæðingarefni 11/14      1.400 m3
  • – Klæðingarefni 8/11        1.300 m3
  • – Klæðingarefni 4/8             900 m3
  • – Hálkuvarnarefni 2/6       1.200 m3

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 8.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.