Home Fréttir Í fréttum Kynningarfundir á SAk um útboð fullnaðarhönnunar

Kynningarfundir á SAk um útboð fullnaðarhönnunar

96
0
Mynd: NLSH.is

Nýlega fóru fram kynningarfundir á Sjúkrahúsinu á Akureyri í tengslum við lokað hönnunarútboð.

<>

Fulltrúar þeirra fimm hönnunarhópa sem eru nú að vinna að tillögum mættu á kynningarfund og kynntu sér vel aðstæður á fyrirhuguðum byggingarstað.

Þau teymi sem eru þátttakendur í útboðinu eru:

1.
Arkþing Nordic
Exa nordic
Lota ehf.
Myrra hljóðstofa

2.
EFLA
ASK arkitektar
Ratio arkitekter

3.
Mannvit
Arkís arkitektar

3.
Verkís
TBL arkitektar
JCA Ltd
Brekke & Strand

4.
Teiknistofan Tröð
Teknik verkfræðistofa
TKM hönnun
Örugg verkfræðistofa
Hljóðvist
Kanon arkitektar ehf

Þá var fundur með matsnefndinni þar sem matsnefndin fór yfir útboðsgögnin og matslíkanið. Matsnefndina skipa:

  • Kristján Þór Júlíusson, formaður matsnefndar
  • Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk
  • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri
  • Lilja Stefánsdóttir, ráðgjafi LSH
  • Helgi Davíð Ingason, verkefnastjóri NLSH

Undirbúnings og umsjónaraðilar matsnefndar eru Signý Stefánsdóttir verkefnastjóri NLSH og Sigríður Sigurðardóttir, sviðsstjóri hönnunarsviðs NLSH ásamt Gunnari Líndal Sigurðssyni, verkefnastjóra á sviði rekstrar og klíniskrar stoðþjónustu SAk.

Innkaupastjóri verkefnisins er Indriði Waage frá NLSH.

Heimild: NLSH.is