Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í endurbætur íþróttasal Íþróttahúsins á Vesturgötu.
Verkið felur í sér frágang innanhús þar sem lofta og veggjaklæðningar verða endurnýjaðar.
Lagðar verða ný lagnir, loftræsing og raflagnir. Að auki verða gaflar salarins einangraðir að utan og klæddir.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá föstudeginum 8. mars 2024 í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar, slóð https://akranes.ajoursystem.net
Tilboðum með umbeðnum gögnum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 27. mars 2024.
Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Heimild: Akraneskaupstaður