Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Yfirborðsmerkingar, vegmálun öll svæði 2024-2026

Opnun útboðs: Yfirborðsmerkingar, vegmálun öll svæði 2024-2026

227
0

Opnun tilboða 5. mars 2024. Yfirborðsmerkingar akbrauta með málningu á fjórum svæðum Vegagerðarinnar, þ.e.a.s. Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði.

<>

Um er að ræða málun miðlína og kantlína á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026.

Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028.

Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 4.910 km.  

Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:

  • Miðlínur                     1.950 km
  • Kantlínur                    2.960 km
  • Viðverudagar              80 dagar

Verki skal að fullu lokið 1. september ár hvert.