Home Fréttir Í fréttum Mikill breytileiki í tjónafjárhæðum í Grindavík

Mikill breytileiki í tjónafjárhæðum í Grindavík

65
0
Ljósmynd: Golli

Lokið hefur verið við að skoða og meta skemmdir á flestum íbúðar- og atvinnueignum í Grindavík, þar sem tjón hefur verið tilkynnt til NTÍ.

<>

Nú er unnið að kostnaðarmati og gerð matsgerða, en reiknað er með að fyrstu matsgerðir vegna minna skemmdra húseigna verði sendar eigendum til kynningar í lok þessarar viku.

Alls hafa tæplega þrjátíu matsmenn frá fjórum verkfræðistofum sinnt tjónamati fyrir NTÍ, auk þriggja sjálfstæðra og sérhæfðra matsmanna. Þetta kemur fram á vef Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Tiltölulega litlar skemmdir fjær sprungusvæðum
Við yfirferð NTÍ á þeim málum sem nú þegar hafa verið skoðuð og metin, hefur komið í ljós að umfang skemmda á fasteignum er almennt óverulegt á þeim svæðum sem eru fjær þeim sprungum og misgengjum sem komið hafa fram í bænum. Auðunn Elíson verkefnastjóri tjónamats hjá Verkís segir að eðli tjónanna hafi komið nokkuð á óvart.

„Miðað við þær miklu jarðhræringar sem orðið hafa í Grindavík síðustu mánuði hefur það komið okkur töluvert á óvart hversu lítið tjón er almennt á eignum í bænum að undanskildum þeim sem standa næst sprungum og misgengjum.

Flestar eignir utan við sprungusvæði og misgengi eru tiltölulega lítið skemmdar. Þó höfum við séð að hús sem deila lóðamörkum geta verið nánast óskemmd á annarri lóðinni en altjón á hinni.“

Allmörg íbúðarhús sem standa á og upp við sprungur og misgengi eru það mikið skemmd að viðgerðarkostnaður er áætlaður hærri en vátryggingarfjárhæð.

NTÍ hefur upplýst eigendur þeirra húsa um niðurstöðu matsins og hafa fjölmörg þeirra tjóna verið greidd sem altjón til tjónþola, að undanskildum kostnaði við niðurrif og förgun í samræmi við lög.

Mögulega þarf að endurtaka einhverjar vettvangsskoðanir
Jón Örvar Bjarnason sviðsstjóri vátryggingasviðs NTÍ segir á vef NTÍ að matsmenn muni fara aftur í tjónaskoðun á þeim eignum sem standa á eða við sprungur og telja má líklegt að tjón hafi aukist á, frá því skoðun fór fram fyrir áramót.

Komi í ljós að tjón hafi aukist verða matsgerðir uppfærðar áður en þær verðar sendar eigendum til kynningar. „Allir eigendur geta auk þess tilkynnt um viðbótartjón á eign sinni til NTÍ hvort heldur fyrir eða eftir að þeim hefur borist matsgerð“ segir Jón Örvar. Frestur til að tilkynna viðbótartjón til NTÍ er eitt ár frá því að tjónið kemur í ljós.

Heimild: Vf.is