Bæjarfulltrúar í Hafnarfirði, forsvarsmenn Hauka og verktakar fögnuðu því saman í gær að síðasta sperran í nýtt knatthús Hauka að Ásvöllum er risin.
Fram kemur á vef Hafnarfjarðarbæjar að af því tilefni var haldið reisugildi en knatthús Hauka verður upphitað fjölnota íþróttamannvirki. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, tók fyrstu skóflustunguna að knatthúsi Hauka 12. apríl 2021 á 90 ára afmælisdegi knattspyrnufélagsins.
Um helmingur verksins er að baki stefnt er að því að taka húsið í notkun í desember og mun knatthúsið geta hýst leiki í efstu deild. Lofthæðin er mest 20 metrar og mun það taka hátt í 900 manns í sæti.
Heimild: Mbl.is