Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í þessu almenna útboði fyrir útboðsverkið: Nýr Landspítali við Hringbraut. Meðferðarkjarni – Þakvirki
Verkefni þetta nær til fullnaðarfrágangs á ytra byrði meðferðarkjarna (MFK). Útveggjakerfi og glerþök yfir inngörðum eru ekki hluti þessa útboðs.
Þeir verkþættir sem taldir eru upp í yfirliti yfir verkefnið eru stærstu verkþættir verkefnisins en ekki fullnaðarupptalning. Bjóðandi skal yfirfara teikningar, verklýsingar og tilboðsskrá.
Helstu verkþættir verkefnisins eru:
Frágangur utanhúss:
- Múrverk
- Þakfrágangur
- Járn og blikksmíði
Frágangur á yfirboði ljósgarða:
- Lögn blandaðrar hellulagnar
- Ræktunarsvæði og þökulögn
Lagnir og loftræsting:
- Þakniðurföll og allar regnvatnslagnir innanhúss
- Útloftun frárennslis á þökum
- Vatnskranar utanhúss
- Snjóbræðslulagnir
- Loftræsihattar og þakstólar
Raflagnir:
- Lágspennulagnir þ.e. eldingavarnarkerfi sem saman stendur af eldingaspjótum, lagnaleiðir, pípu- og strengjalagnir, ídráttur, tenging á vír. Um er að ræða spjót og lagnir á þaki ásamt niðurleiðurum í pípum (aðrir með pípuna) sem skulu leggjast niður veggi MFK en fyrir innan fyrirhugaða útveggjaklæðningu. Niðurleiðarar skulu tengjast við jarðskautskerfi sem er í jörð
- Lágspennulagnir þ.e. jarðbindingar, lagnaleiðir, pípu- og strengjalagnir, ídráttur, tenging á vír ásamt uppsetningu og frágangi á tengistöðum
- Lýsingarbúnaður
Bent er á að verkið er unnið í mikilli nálægð við sjúkrahús sem er í fullum rekstri allan verktímann, Læknagarð Háskóla Íslands og íbúðabyggð og skal verktaki taka fullt tillit til þess eins og víða er getið í verklýsingu.
Útboðsgögn afhent: | 23.02.2024 kl. 14:32 |
Skilafrestur | 27.03.2024 kl. 11:00 |
Opnun tilboða: | 27.03.2024 kl. 11:15 |
Heimild: NLSH ohf.