Home Fréttir Í fréttum Blæs á á­hyggjur borgar­full­trúa af brúnni

Blæs á á­hyggjur borgar­full­trúa af brúnni

51
0
Kjartan og Davíð eru ekki sammála um Fossvogsbrú. VÍSIR/EINAR

Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir ekkert til í því að Fossvogsbrú muni nýtast illa. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir allt of mikla fjármuni fara í framkvæmdina, sem myndu nýtast betur annars staðar.

<>

Brúin mun tengja saman Kópavog og Reykjavík, líkt og sjá má í fréttinni í spilaranum hér að neðan. Hún verður fyrir almenningssamgöngur og hjólandi og gangandi vegfarendur, en ekki einkabílinn. En sitt sýnist hverjum um gagnsemi framkvæmdarinnar, og kostnaðinn.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
VÍSIR/EINAR

„Þessi brú verður mjög dýr, hún verður ekki undir tíu milljörðum króna að mínu áliti. Kostnaðaráætlanir hafa margfaldast. En hún leysir í rauninni lítinn sem engan vanda fyrir höfuðborgarsvæðið. Þetta verkefni er ekki arðsamt, það væri hægt að finna verkefni sem væru arðsöm og miklu þarfari, fyrir þessa fjármuni,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Kjartan nefnir þar mislæg gatnamót á fjölförnustu gatnamótum borgarinnar, sem og eflingu Strætó. Nýting brúarinnar verði einhver, en þó ekki þannig að það réttlæti 8,3 milljarða kostnaðaráætlun.

„Þarna erum við bara að setja allt of mikla peninga í eitthvað sem leysir lítinn sem engan vanda, alveg eins og Bragginn frægi sem er rétt við hliðina á okkur,“ sagði Kjartan þar sem hann var tekinn tali á þeim slóðum sem Reykjavíkurhluti brúarinnar mun standa.

Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna.
VÍSIR/EINAR

Brúin muni nýtast vel
Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna, félagsins sem heldur utan um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, segir fullyrðingar um litla nýtingu eða kostnað yfir 10 milljarða ekki standast. Hönnun sé langt komin, og því sé kostnaðaráætlun áreiðanlegri.

„Þannig að ég hef ekki mikla trú á því að það breytist mikið úr þessu. Ekki nema það verði einhverjar breytingar á ytri aðstæðum, á verði á stáli eða steypu, eða eitthvað óvænt komi upp á,“ segir Davíð.

Brúin verði vel nýtt.

„Það er gert ráð fyrir að 10 þúsund manns sem muni nota þessa brú daglega. Það er svipaður fjöldi og fer um Hvalfjarðargöng á hverjum degi, sem er nú ansi mikið, það eru fjölförnustu göng á Íslandi.“

Brúin muni einnig nýtast þeim sem ekki noti hana, en 60 þúsund manns keyra um Fossvoginn á hverjum degi.

„Þetta léttir á umferðinni þar, þannig að það verða tíu þúsund manns sem munu ekki keyra um Fossvoginn, til viðbótar við þá 60 þúsund sem keyra þar í dag.“

Félagshagfræðileg greining á fyrstu lotu Borgalínu, þar með talið Fossvogsbrú, bendi til ábata upp á 26 milljarða á 30 árum.

„Og að arðsemi sé um sjö prósent, sem þykir nokkuð gott í svona framkvæmdum.“

Heimild: Visir.is