Home Fréttir Í fréttum Nýr kjarni við Leikskólann Bergheima í Þorlákshöfn

Nýr kjarni við Leikskólann Bergheima í Þorlákshöfn

57
0
Mynd: Hafnarfrettir.is

Nýju húsnæði hefur verið komið fyrir á lóð leikskólans og hefur það fengið nafnið Jötunheimar. Byggingin mun hýsa nýjan kjarna fyrir leikskólann og hefur plássum þar verið úthlutað.

<>

Fyrirhugað er að opna starfsemi þar mánudaginn 26. febrúar. Nýi kjarninn er glæsilegur og er ánægjulegt að vel tókst til með húsnæðið sem fjölgar börnum á leikskólanum í 135 börn.

Núna næstu daga munu um 22 börn hefja nám í leikskólanum og kallar það á endurskipulagningu innan leikskólans sem nú þegar hefur verið unnin af starfsfólki og kynnt fyrir foreldrum.

Mynd: Hafnarfrettir.is

Það er mikilvægt fyrir sveitarfélagið að geta tekið vel á móti fólki sem flytur til okkar og hlúa vel að barnafjölskyldum sem hér búa. Í Ölfusi eru góðir skólar og fyrirmyndar íþróttastarf sem myndar umgjörð utan um fjölskylduna.

Leikskólinn Bergheimar hefur verið að taka inn í skólann börn frá 18 mánaða aldri ef laus pláss eru til staðar en það er ljóst að starfsemin þar er að verða komin að þolmörkum. Það er því gleðiefni að ákveðið er að haustið 2025 er fyrirhugað að opna nýjan leikskóla í Vesturbyggð.

Í byrjun árs var auglýst eftir dagforeldrum til starfa og hafa nokkrir áhugasamir haft samband. Um áramótin samþykkti bæjarstjórn Ölfuss að hækka heimgreiðslur til foreldra barna sem eru orðin 12 mánaða í 100.000 kr. Sama upphæð er veitt til niðurgreiðslu hjá dagforeldrum.

Heimild: Hafnarfrettir.is