Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Nýr Landspítali: Síðustu hæðir millibygginga meðferðarkjarna að rísa

Nýr Landspítali: Síðustu hæðir millibygginga meðferðarkjarna að rísa

74
0
Mynd: NLSH ohf.

Uppsteyptu burðarvirki meðferðarkjarna lauk í nóvember að frátöldum síðustu verkþáttum í millibyggingum, sem ganga út á að reisa stálburðarvirki og steypa stigaþrep og palla.

<>

Sú vinna er langt á veg komin, en unnið hefur verið í millibyggingum frá vestri til austurs í byggingunni.

Um er að ræða fjórar millibyggingar og hefur vinnu við tvær þeirra verið lokið og hinar tvær eru langt á veg komnar.

Búast má við að efstu pallarnir verði steyptir í byrjun mars.

Heimild: NLSH ohf.