Home Fréttir Í fréttum Göngubrú milli meðferðarkjarna og Barnaspítala

Göngubrú milli meðferðarkjarna og Barnaspítala

64
0
Athuga að mynd með frétt á ekki við um endanlegt útlit. Mynd: NLSH.is

 

<>

NLSH óskar eftir tilboði í útboðsverkið göngubrú milli meðferðarkjarna og Barnaspítala.

Verkefni þetta nær til smíði, uppsetningar og fullnaðarfrágangs á ytra og innra byrði tengibrúar á milli meðferðarkjarna og Barnaspítala.

Þeir verkþættir sem taldir eru upp í yfirliti yfir verkefnið eru stærstu verkþættir verkefnisins:

Burðarvirki:

  • Smíði á stálvirki, 11.290 kg.
  • Uppsetning á brú

Frágangur utanhúss:

  • Breytingar á útvegg Barnaspítala
  • Glerjun, 115 m2
  • Þakfrágangur, 74 m2
  • Járn og blikksmíði

Frágangur innanhúss:

  • Gólfefni, 65 m2
  • Innveggir
  • Innihurðir
  • Loftaklæðning
  • Málun, 88 m2

Lagnir og loftræsting:

  • Hitakerfi
  • Vatnsúðakerfi
  • Loftræsikerfi

Raflagnir:

  • Lýsingarbúnaður
  • Brunaviðvörunarkerfi
  • Fjarskiptakerfi
  • Öryggis- og aðgangskerfi

Heimild: NLSH.is