Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi 20 nýjar í­búðir í byggingu á Laugar­vatni

20 nýjar í­búðir í byggingu á Laugar­vatni

95
0
Róbert Aron Pálmason, smiður og íbúi á Laugarvatni, sem dásamar staðinn enda mikið byggt á Laugarvatni og margir að flytja þangað. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Heimamenn á Laugarvatni vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið því það er svo mikil uppbygging á staðnum og mikið af nýjum húsum í byggingum að sjaldan eða aldrei hefur annað eins sést.

<>

Róbert Aron Pálmason, verktaki, smiður og íbúi á Laugarvatni er einn af þeim sem er að byggja nokkur hús á Laugarvatni. Hann er ánægður með uppbygginguna á staðnum enda segir hann Laugarvatn vera frábæran stað til að búa á en þorpið er hluti af Bláskógabyggð.

„Það eru hérna 20 íbúðir í byggingu núna, sem er bara óvenju gott á mælikvarða lítils þorps. Hérna eru í byggingu raðhúsaíbúðir og það eru lítil fjölbýli í næstu götu, sem góður verktaki er að byggja og svo eru held ég fimm íbúðarhús, sem að einstaklingar eru að byggja,” segir Róbert Aron.

Húsin sem Róbert Aron er meðal annars að byggja á Laugarvatni og eru að fara í sölu.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

En hvaða skýringu á Róbert Aron á þessar miklu uppbyggingu á staðnum?

„Hér er náttúrulega dásamlegt að búa og ég held að Covid hafi kennt okkur það svolítið að það þarf ekkert endilega að búa í Reykjavík, maður getur bara búið svolítið fyrir utan borgina. Til dæmis fólk, sem þarf að fara einu sinni til tvisvar í vinnuna í Reykjavík, getur vel setið fyrir framan tölvuna hér frekar en að bíða að komast þangað á rauðu ljósi í Reykjavík.”

Róbert Aron segir umhverfið á Laugarvatni vera einstaklega rólegt og gott og margt áhugavert í boði. Þá nefnir hann skólasamfélagið, sem sé frábært, eins og í menntaskólanum og þá sé íþróttalíf og félagsstörf frábær á staðnum.

En hvað með fasteignaverð á Laugarvatni á nýju húsunum, hvernig er það?

„Það er bara skammarlega lágt mundi ég segja miðað við gæðin, sem eru því fólgin að búa hérna. Það er spottprís á íbúðunum hér en það verður bara að hafa það. Hér höfum við í rauninni allt til alls. Það er stutt á Selfoss, örstutt að skjótast í bæinn og allt bara dásamlegt,” segir Róbert Aron, alsæll með lífið á Laugarvatni.

Heimild: Visir.is