Reykjaneshöfn óskaði eftir tilboðum í verkið „Njarðvíkurhöfn, Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024“ og bauð eitt fyrirtækii í verkið.
Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæplega 798 milljónir króna, en kostnaðaráætlun upp á rétt um 390 milljónir.
Tilboðið var því tæplega 205% yfir kostnaðaráætlun. Vegagerðin sem er ráðgjafi Reykjaneshafnar við þessa framkvæmd lagði til að tilboðinu yrði hafnað, sem var gert.
Helstu verkþættir sem til stóð að fara í voru dýpkun hafnarinnar um 75.700 m3 og Þilskurður 200 m.
Heimild: Sudurnes.net