Home Fréttir Í fréttum Hætta að meta tjón í Grinda­vík

Hætta að meta tjón í Grinda­vík

180
0
Frá aðgerðum í Grindavík í fyrradag. VÍSIR/STEINGRÍMUR DÚI

Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum.

<>

Þetta segir í svari Náttúruhamfaratryggingar við fyrirspurn fréttastofu um framhald aðgerða í bænum.

Greint hefur verið frá því að hlé hafi verið gert á öllum framkvæmdum við viðgerðir í bænum, eftir að maður féll ofan í sprungu. Hann hafði verið við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu. Leit að manninum var hætt í gær.

„Í ljósi nýliðinna atburða mun NTÍ stöðva allt frekara mat þangað til Almannavarnir hafa ákveðið næstu skref. Á þessari stundu er hugur okkar hjá fjölskyldu, vinum og vinnufélögum mannsins sem leitað hefur verið að,“ segir í svari Náttúruhamfaratryggingar.

Heimild: Visir.is