Home Fréttir Í fréttum Styttist í uppbyggingu í Vatnsendahvarfi

Styttist í uppbyggingu í Vatnsendahvarfi

195
0
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, undirrituðu í gær afsal samnings um kaup á landi ríkisins á Vatnsendahæð.

<>

Kópavogsbær hefur undanfarin ár unnið að skipulagi svæðisins á hæðinni og styttist í að lóðum verði úthlutað í hverfinu sem ber heitið Vatnsendahvarf.

„Það er gríðarlega spennandi að fá nýtt hverfi í Kópavog. Vatnsendahvarfið verður fallegt hverfi enda skipulag hverfisins gott og staðsetning sömuleiðis,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Um 500 íbúða byggð verður í Vatnsendahvarfi, bæði sérbýli og fjölbýli. Aðkoman í hverfið er um Kambsveg en íbúðirnar standa við tólf götur sem þegar hafa fengið götuheiti sem eru: Hallahvarf, Háahvarf, Heiðarhvarf, Hlíðarhvarf, Hæðarhvarf, Roðahvarf, Skólahvarf, Skírnishvarf, Skyggnishvarf, Skýjahvarf, Sólarhvarf og Stöðvarhvarf.

Stefnt er á að úthluta lóðum í Vatnsendahvarfi með vorinu og verður lóðaúthlutun kynnt rækilega áður en að henni kemur.

Heimild: Kopavogur.is