Home Fréttir Í fréttum Telur skyn­sam­legt að reisa varnar­garða norðan við Grindavíkurbæ

Telur skyn­sam­legt að reisa varnar­garða norðan við Grindavíkurbæ

48
0
Sigurður Ingi Jóhannsson telur að ákvörðun um uppbyggingu varnargarða verði auðveld. VÍSIR/VILHELM

Innviðaráðherra telur skynsamlegt að byggja varnargarða norðan við Grindavíkurbæ til að verja bæinn ef til eldgoss kemur. Framkvæmdin sé vissulega dýr en verndi mun meiri verðmæti.

<>

Bæjarstjórn Grindavíkur skoraði í vikunni á ríkisstjórnina að ljúka hönnun og fjármögnun varnargarða norðan við Grindavíkurbæ til að tryggja öryggi íbúa til framtíðar.

Innviðaráðherra segist deila áhyggjum Grindvíkinga og segir skynsamlegt að ráðast í uppbyggingu varnargarða. Framkvæmdin sé vissulega dýr en verndi mun meiri verðmæti.

„Það eru auðvitað umtalsverð verðmæti í Grindavík og bara hjá náttúruhamfaratryggingasjóði er stærðargráðan minnir mig 150-160 milljarðar þannig að garður upp á einhverja milljarða sem þú ert að forða tjóni á þessu er kannski ekkert erfitt að taka slíka ákvörðun,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Auk þess séu mikil verðmæti fólgin í atvinnu á svæðinu en þar er ein öflugasta verstöð landsins sem bæjarstjórinn segir að skili hátt í 25 milljörðum á ári í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Því sé uppbygging garðanna ekki síður mikilvæg fyrir þjóðarbúið.

„Mín afstaða hefur alla tíð verið sú að auðvitað eigum við að reyna að byggja upp varnargarða til að forða tjóni á mannvirki og innviði alveg frá því að við prófuðum þann fyrsta.“

Auðveld ákvörðun
Aðspurður hvort hann muni leggja það til á ríkisstjórnarfundi á morgun að ráðist verði í gerð varnargarða segist hann búast við að verkefnið komi frá dómsmálaráðherra.

„Í lögunum sem við samþykktum á þingi um varnargarðinn sem búið er að byggja er heimild til að byggja fleiri slíka varnargarða þannig ég reikna nú með að þessi ákvörðun verði auðveld.“

Hann segist vænta þess að málið verði rætt á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið.

Eigiði efni á þessi?

„Eins og ég segi þegar þú vegur og metur tjón upp á 150 til 160 milljarða plús fyrirtæki höfn og fleira á móti einhverjum milljörðum til að verja þig þá er það í minum huga engin spurning.“

Heimild: Visir.is