Sveitarfélagið Árborg auglýsti nýlega 17,5 hektara land til sölu í svokölluðu Björkurstykki á Selfossi en tilboðin voru opnuð nú síðdegis.
Um er að ræða vel staðsett land, sem er ætlað undir íbúðabyggð. Landið er ekki deiliskipulagt en fyrirliggjandi eru deiliskipulagstillögur frá nóvember 2021.
Þær tillögur gera ráð fyrir allt að 296 íbúða byggð en hugmyndir eru uppi um að fjöldi íbúða á landinu geti orðið allt að 360.
Lágmarkstilboð í landið var 700.000.000 milljónir króna.
Tilboðin sem bárust í landið voru þessi:
Fagridalur ehf., 732.250.000 krónur, sem er 4% yfir verðmati
JT verk ehf., 810.000.000 krónur, sem er 16% yfir verðmati
Arcus ehf., 707.700.000 krónur, sem er 1% yfir verðmati
Jórvík fasteignir ehf., 1.210.000.800 krónur, sem er 73% yfir verðmati.
„Þetta sýnir fyrst og fremst hversu mikil trú er á svæðinu. Nú fer væntanlega af stað vinna við að fara yfir umbeðin fylgigögn og í framhaldinu fer tilboðið fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Tímalína framkvæmda eru einhver ár en greiðslur eiga að berast innan nokkurra vikna frá samþykki bæjarráðs,” segir Fjóla Kristinsdóttir, bæjarstjóri í Árborg aðspurð um viðbrögð við tilboðunum.
Heimild: Visir.is