Home Fréttir Í fréttum Hyggjast kaupa allt að 210 leiguíbúðir fyrir Grindvíkinga

Hyggjast kaupa allt að 210 leiguíbúðir fyrir Grindvíkinga

129
0
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Ríkisstjórnin tilkynnti í morgun aðgerðir til að mæta húsnæðisvanda Grindvíkinga.

<>

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu.

Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við stuðningskerfið geti numið um 220-240 milljónum króna á mánuði, að því er segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Aðgerðirnar fela annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur.

210 íbúðir
Samtals er horft til þess í samstarfi við Grindavíkurbæ að ráðstafa allt að 210 nýjum íbúðum til Grindvíkinga til að leysa húsnæðisþörf.

„Til að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur m.a. verið leitað til Bríetar leigufélags, sem er að fullu í eigu ríkisins, um að kaupa allt að 150 nýjar íbúðir á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, til leigu fyrir Grindvíkinga.“

Ríkisstjórnin segir að leitað verði hagstæðustu tilboða í eignirnar sem fjármagnaðar verða af Húsnæðissjóði. Þá mun Bjarg íbúðafélag koma að því að mæta sérstaklega húsnæðisþörf tekjulægri heimila í Grindavík með mögulegum kaupum á allt að 60 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði til afhendingar á næstu vikum.

Frumvarp um sértækan húsnæðisstuðning í næstu viku
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra mun í næstu viku leggja fram frumvarp á Alþingi um sértækan húsnæðisstuðning til að koma til móts við aukinn kostnað þeirra sem þurfa að leigja sér húsnæði utan Grindavíkur vegna jarðhræringanna.

Veittur verður mánaðarlegur húsnæðisstuðningur sem fer stighækkandi eftir fjölda heimilisfólks gegn framvísun skráðs leigusamnings.

Stuðningurinn verður tímabundinn til þriggja mánaða og endurskoðaður fyrir lok þess tímabils með tilliti til þarfar á áframhaldandi stuðningi.

Heimild: Vb.is