Home Fréttir Í fréttum Rúm­lega eitt þúsund í­búðir eru í byggingu á Suður­landi í dag

Rúm­lega eitt þúsund í­búðir eru í byggingu á Suður­landi í dag

75
0
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sem var með athyglisverðar tölur á fundinum á Selfossi í vikunni. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Rúmlega eitt þúsund byggingar eru í byggingu á Suðurlandi í dag og á næstu tveimur árum þarf að byggja um þúsund íbúðir í viðbót samkvæmt spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

<>

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) boðuðu til fundar í vikunni um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á Suðurlandi í samstarfi við Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.

Á fundinum var farið yfir stöðu á íbúðamarkaði á Suðurlandi, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða, bæði hvað varðar rekstur og uppbyggingu íbúða á landsbyggðinni.

Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var með tölur um fjölda bygginga á fundinum, sem eru í byggingu á Suðurlandi akkúrat í dag.

„Þær eru rétt rúmlega þúsund íbúðir, sem við teljum núna byggingar á Suðurlandi. Ef við horfum á fimm ára tímabil þá hefur orðið gífurlegur vöxtur á Suðurlandi og á sama tíma er fólksfjölgun líka búin að vera gífurleg og fólksfjölgunin hefur núna undanfarið verið talsvert umfram spár jafnt á Suðurlandi eins og annars staðar á landinu,“ segir Elmar.

Og á þessar glæru frá Elmari eru athyglisverðir punktar um stöðuna á Suðurlandi.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Og Elmar segir að það þurfi að byggja meira á Suðurlandi.

„Já, ef við horfum bara á fólksfjölgunina og spánna um íbúðaþörf þá virðist vera að við séum að ná þessu núna 2023 en það lítur ekkert sérstaklega vel út fyrir næsta ár og þar næsta. Það þarf að viðhalda stöðugu framboði nýrra íbúða og halda áfram að byggja og hefja ný verkefni.“

Er það mjög mikilvægt?

„Það er lykilinn að því að við höldum stöðugleika á íbúðamarkaði og komum með jafnt og þétt framboð þannig að það sé ekki það margir að berjast um hverja einustu íbúð. Já, þannig að stöðugleikinn er að halda jöfnu framboði nýrra íbúða,“ segir Elmar.

Ein af glærunum frá Elmari.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

En hvað með verðbólguna og háa vexti, hafi þessir þættir ekki mikið að segja?

„Já, það hækkar allt saman en það sem vegur þyngst núna er vaxtarstigið og fjármagnskostnaður í byggingageiranum og vaxtarstigið varðandi afborganir á lánum.“

En þú ert bjartsýnn þrátt fyrir allt?

„Maður verður að vera það, það þýðir ekkert annað,“ segir Elmar.

Heimild: Visir.is