Home Fréttir Í fréttum 8.12.2023 Geislavarnir ríkisins – Leiguhúsnæði

8.12.2023 Geislavarnir ríkisins – Leiguhúsnæði

42
0
Mynd/Vilhelm

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Geislavarna ríkisins. Miðað er við 15 ára leigutíma, húsnæði fullbúið til notkunar án lauss búnaðar.

<>

Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu. Einnig skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, flutningabíla og næg bílastæði.

Húsrýmisþörf er áætluð um 820 fermetrar þ.a. 270 fermetra fyrir hefðbundna skrifstofustarfsemi og um 550 fermetra fyrir sértæk rými.

Kröfur til húsnæðisins má sjá hér: Húslýsing og þarfagreining

Tilboð bjóðenda fyllist út hér:

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefni Geislavarnir ríkisins – leiguhúsnæði skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is .

Fyrirspurnarfrestur rennur út mánudaginn 20. nóvember en svarfrestur er til og með fimmtudagsins 23. nóvember.

Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 8. desember 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 6330126 – Geislavarnir ríkisins – Leiguhúsnæði.

Útboðsnúmer: 6330126