Home Fréttir Í fréttum 70 prósenta sam­dráttur í ný­byggingum milli ára

70 prósenta sam­dráttur í ný­byggingum milli ára

60
0
225 nýjar íbúðir eru fullbúnar í Reykjavík og 135 í Garðabæ en hafa ekki verið teknar í notkun. VÍSIR/VILHELM

Verulegur samdráttur hefur orðið í nýbyggingum milli ára og þá hefur einnig dregið verulega úr sölu nýrra íbúða. Kaupsamningum fjölgar hins vegar almennt milli mánaða.

<>

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Þar segir að ríflega 70 prósenta samdráttur hafi orðið í nýbyggingum frá mars og fram í september ef miðað er við sama tímabil fyrir ári. Síðustu mánuði var hafin bygging á 768 íbúðum á landinu öllu en þær voru 2.575 á sama tímabili árið 2022.

Skýringin sé mögulega sú að hækkandi vaxtastig sé farið að hafa áhrif á byggingamarkaðinn.

Þá segir í skýrslunni að verulega hafi dregið úr sölu nýrra íbúða en 777 íbúðir sé fullbúnar en hafi ekki verið teknar í notkun. Til samanburðar hafi þær verið 238 í mars síðastliðnum og 131 í september í fyrra.

Það virðist einnig hafa hægt á framkvæmdum en af þeim 8.683 íbúðum sem séu í byggingu séu 2.356 íbúðir enn á sama byggingastigi nú og í síðustu talningu í mars.

„Kaupsamningum fjölgar um 8% milli mánaða sé miðað við árstíðaleiðréttar tölur. Í ágúst voru gefnir út 649 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði sem gera 675 samninga þegar leiðrétt hefur verið fyrir reglubundnum árstíðasveiflum,“ segir í samantekt.

Um 717 fasteignir voru teknar úr sölu á höfuðborgarsvæðinu í september, sem er 43 prósent aukning miðað við september í fyrra.

Þá hægðist á raunverðslækkun íbúða í síðasta mánuði, þegar 12 mánaða raunlækkun á höfuðborgarsvæðinu mældist 5 prósent en var 5,3 prósent í ágúst. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,4 prósent að nafnvirði á milli mánaða.

Heimild: Visir.is