Home Fréttir Í fréttum 24.10.2023 Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2023

24.10.2023 Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2023

168
0
Mynd: mbl.is/sisi

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2023, útboð 15915

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkefnið felst í endurbætum á biðstöðvum strætó í Reykjavík. Megin hluti verkefnisins felst í að færa ruslastampa eða fjarlægja ruslatunnur, færa skiltastaura strætó og útbúa leiðilínur frá strætóskýlum að götukanti.

Verkið felst aðalega í eftirfarandi:

•           Færslu á ruslastömpum og skiltastaurum strætó á biðstöðvum.

•           Uppgreftri fyrir götu- og gangstéttastæðum.

•           Fullnaðarfrágangi kantsteins auk gangstéttaryfirborða þar sem það á við.

•           Rif og förgun á malbiki, steyptri stétt, hellum, kantsteini, ruslastömpum, staurum og biðskýlum þar sem það á við

•           Frágangi á viðvörunarhellum og leiðilínum við biðstöðvar Strætó þar sem það á við

•           Yfirborðsfrágangi við biðstöðvar Strætó þar sem það á við.

•           Rifi á núverandi grágrýtiskantsteini, hreinsun, lageringu og endurlögn á hluta af grágrýtiskantsteini við biðstöð á Snorrabraut

•           Fullnaðarfrágangi fyllinga undir ný gangstéttastæði.

•           Færsla og enduruppsetningu á núverandi strætóskýlum þar sem það á við.

•           Uppsetning nýrra strætóskýla þar sem það á við.

Helstu magntölur eru: 

•           Uppgröftur         195 m3

•           Fyllingar              195 m3

•           Vélsteyptur kantsteinn  130 m

•           Hellulögn            430 m3

•           Grasþökur           160 m2

•           Ruslastampar     25 stk

•           Tilfærsla á tímatöflustaurum       24 stk

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 10. október 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 24. október 2023.