Útboð þetta tekur til uppsteypu vegna byggingar á rannsóknahúsi á lóð Landspítala við Hringbraut. Heildarflatarmál er 17.808 fermetrar á fimm hæðum með tveimur kjöllurum.
Í rannsóknahúsi verður öll rannsóknastarfsemi Landspítala sameinuð á einn stað.
Um er að ræða almennt útboð, sbr. 2. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup (OIL) og er ótilteknum fjölda, með almennri útboðsauglýsingu.
Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Eykt ehf. kr. 4.104.695.224 (84%)
ÞG verktakar ehf. kr. 4.879.910.461 (99 %)
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 4.908.776.169 (100%)
Opnunarskýrsla felur ekki í sér niðurstöðu útboðs.
Heimild: NLSH ohf.