Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Skagaströnd – Miðgarður, endurbygging milli Ásgarðs“.
|
Brjóta og fjarlægja gamla þekju, um 370 m2.
|
|
Jarðvinna og steypa 46 m landvegg
|
|
Reka niður 16 bryggjustaura úr harðviði.
|
|
Smíði á um 207 m² af bryggju úr harðviði.
|
|
Uppsetning á 30 stk DD250 þybbum á bryggju.
|
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 16. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.












