Home Fréttir Í fréttum 15.03.2016 Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á Suðursvæði 2016-2018

15.03.2016 Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á Suðursvæði 2016-2018

144
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingu akbrauta með sprautuplasti, árin 2016-2018. Um er að ræða merking miðlína, deililína og kantlína á Suðursvæði.

<>

Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru:

Flutningur vinnuflokks 1.500 km
Miðlínur 1.890.000 m
Deililínur 147.900 m
Kantlínur 450.000 m

Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum  29. febrúar 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.