
Betri samgöngur ohf. óska tilboða í gerð göngu- og hjólastíga í Garðabæ og Kópavogi.
Framkvæmdin felst í gerð göngu- og hjólastíga ásamt stígalýsingu, nýjum skiltum og merkingum á tveimur framkvæmdarsvæðum. Annars vegar í Garðabæ, meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Álftanesvegi að Breiðási, og hins vegar í Kópavogi, frá sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs, meðfram Hafnarfjarðarvegi að núverandi undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi undir Hafnafjarðarveg við Kópavogstún.
Hluti framkvæmdarinnar er smíði brúar yfir Kópavogslæk, samsetning hennar og fullnaðarfrágangi við hlið núverandi göngubrúar yfir Kópavogslæk. Verkið felur í sér fullnaðarfrágang undirstaðna, brúarstólpa og brúarhandriða.
Þá felst í framkvæmdinni landmótun og endurgerð grjótvarnargarðs í Kópavogi vegna breikkunar stígs og uppsetningu nýrrar girðingar meðfram hjólastígnum þar. Einnig felur verkið í sér færslu á götugögnum, svo sem ljósum, skiltum og bekkjum, ásamt uppsetningu stígalýsingar.
Til viðbótar skal verktaki annast upprif á núverandi vegriði meðfram Hafnafjarðarvegi í Kópavogi.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
- Rif og förgun á malbiki.
- Fullnaðarfrágangi fyllinga og jöfnunarlags undir stígsvæði.
- Malbikun stíga.
- Uppsetning á lýsingu meðfram stíg
- Fullnaðarfrágangi á leið- og viðvörunahellum og færslu og uppsetningu á skiltum.
- Smíði og uppsetning brúar yfir Kópavogslæk
- Endurgerð á hluta grjótvarnargarðs við Kópavog vegna breikkunar stíga.
- Uppsetning nýrrar girðingar meðfram hluta hjólastígsins í Kópavogi.
- Upprif núverandi vegriðs meðfram Hafnafjarðarvegi í Kópavogi
Helstu magntölur verksins eru:
- Upprif malbiks 900 m2
- Uppgröftur 000 m3
- Malarfylling í stíga 800 m3
- Malbik 150 m2
- Hellu- og steinlagnir 260 m2
- Þökulögn 500 m2
- Lagnir- Uppgröftur 450 m3
- Uppsetning ljósastólpa 38 stk
- Gerð og uppsetning hljóðgirðingar 290 m
- Endurgerð grjótvarnargarðs við Kópavog 750 m3
| Útboðsgögn afhent: | 13.03.2026 kl. 08:15 |
| Skilafrestur | 24.04.2026 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 24.04.2026 kl. 14:00 |











