Home Fréttir Í fréttum Nýtt eittþúsund fermetra verslunarhúsnæði á Selfossi

Nýtt eittþúsund fermetra verslunarhúsnæði á Selfossi

170
0
MYND: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

JÁVERK skoðar nú möguleikana á því að hefja byggingu á eittþúsund fermetra verslunarhúsnæði á lóð sem fyrirtækið á við Larsenstræti á Selfossi.

<>

„Já, við erum að skoða það mjög alvarlega og ég er nánast viss um að við förum út í þessa byggingarframkvæmd en hvenær það verður nákvæmlega get ég ekki sagt til um. Við finnum að það er mikil eftirspurn eftir slíku húsnæði á Selfossi,“ sagði Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKS.

Um er að ræða landskika gegnt verslunum Bónus og Hagkaupa. „Verkefnið er spennandi og við verðum ekki lengi að byggja þegar við byrjum,“ bætir Gylfi við.

Heimild: Sunnlenska.is