Consensa óskar eftir tilboðum í hreinsun rotþróa fyrir sveitarfélögin Skagafjörð, Húnaþing og Húnabyggð samkvæmt skilmálum útboðslýsingar.
Um er að ræða hreinsun á rotþróum sem staðsettar eru við lögbýli, íbúðarhús, frístundarhús og stofnanir innan sveitarfélagsmarka fyrrgreindra sveitarfélaga ásamt meðhöndlun seyru.
Nánari upplýsingar um útboðið má finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign. Hlekkur á útboðsgögn má finna hér fyrir neðan:
https://tendsign.com/doc.aspx?MeFormsNoticeId=86101&GoTo=Tender
| Útboðsgögn afhent: | 13.03.2026 kl. 00:00 |
| Skilafrestur | 13.04.2026 kl. 12:00 |
| Opnun tilboða: | 13.04.2026 kl. 12:05 |
Hafa skal í huga að auglýstir tilboðsfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn í útboðskerfinu og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.












