Eftirfarandi lóð hefur verið skilað aftur til Sveitarfélagsins Skagastrandar og er því auglýst sérstaklega til úthlutunar að nýju.
- Hólanesvegur 6
Umsóknarfrestur er 15 virkir dagar fá birtingu auglýsingar þ.e. frá 23. júní – 13. júlí á miðnætti.
Við úthlutun byggingalóða er farið eftir settum reglum þar um en þær finna má hér.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri á opnunartíma skrifstofu að Túnbraut 1-3 eða í síma 455-2700. Þá er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is
Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og eru skráðar á úthlutunarlista Sveitarfélagsins Skagastrandar:
- Bogabraut – ein lóð norðan götu nr: 25.
- Suðurvegur – ein lóð austan götu nr: 11
- Sunnuvegur – tvær lóðir vestan götu nr: 10 og 12
- Ránarbraut – ein lóð norðan götu nr: 3
- Skagavegur – tvær lóðir austan götu, nr: 4 og parhúsalóð nr: 6-8.
- Bankastræti – ein lóð sunnan götu nr. 5.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér.
Áætlað er að umsóknir verði teknar fyrir á fundi Hafnar- og skipulagsnefndar í ágúst. Verður öllum umsækjendum svarað.
Sveitarstjóri
Heimild: Skagastrond.is