Home Fréttir Í fréttum 08.06.2023 Samkeppni um nýjan leik- og grunnskóla í Vogabyggð

08.06.2023 Samkeppni um nýjan leik- og grunnskóla í Vogabyggð

161
0
Horft yfir Fleyvang og Vogabyggð. Mynd: Reykjavik.is

Reykjavíkurborg efnir til tveggja þrepa samkeppni um nýjan samþættan leik- og grunnskóla, frístundaheimili og félagsmiðstöð og nýja göngu- og hjólabrú á Fleyvangi. Að samkeppninni standa umhverfis- og skipulagssvið og skóla- og frístundasvið í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Mannvirkin munu þjóna nýrri Vogabyggð en gert er ráð fyrir allt að 1500 íbúðum á svæðinu.

<>

Meginmarkmið samkeppninnar

  • Ná fram framúrskarandi og framsýnni byggingarlist og landslagshönnun sem skapar nýja umgjörð á Fleyvangi fyrir byggingu, brú og útisvæði fyrir skóla- og frístundastarf.
  • Fanga staðaranda og þau gæði sem eru í nærumhverfi Fleyvangs og sérstöðu í borgarlandinu.
  • Sýna samspil og samþættingu mannvirkja, nærumhverfis og útisvæða.
  • Mynda örugga og áhugaverða tengingu á milli Vogabyggðar og Fleyvangs.
  • Byggja fyrir börn og unglinga. Hönnunin skal fanga mismunandi þarfir og upplifun út frá aldri og þroska barna og unglinga ásamt því að umhverfið tryggi lifandi, kraftmikið og jákvætt umhverfi.
  • Vinna með sjálfbærni og vistvæna hönnun.
  • Ná fram hagkvæmni og huga að kostnaðargát.

Áherslur í starfi skólans

  • Samnýting rýma og sveigjanleiki.
  • Þverfagleg nálgun fagstétta og samvinna allra sem koma að skóla- og frístundastarfi.
  • Samfella í degi barnsins innan veggja skólans, það er frístundarstarfs og skólatíma.
  • Sjálfstæði barna og samvinna allra.

Rýmisupplifun og hönnun þarf að tryggja sérstöðu og sérþarfir einstakra aldurshópa samhliða flæði, gegnsæi og yfirsýn í stóra samhenginu.

Um keppnina

Samkeppnin er tveggja þrepa framkvæmdasamkeppni. Á 1. þrepi setja keppendur fram hugmyndir um lausn viðfangsefnisins í samræmi við keppnislýsingu. Á 2. þrepi þróa keppendur tillögur sínar áfram. Samkeppnin fer fram í samræmi við keppnislýsinguna og fylgigögn og lög um opinber innkaup og innkaupareglur Reykjavíkurborgar.

Keppendur skrá sig til þátttöku á útboðsvef Reykjavíkurborgar. Hægt er að skila inn gögnum á 1. þrepi samkeppninnar fram til klukkan 13 þann 8. júní. Skilafrestur tillagna á 2. þrepi er 10. október 2023.

Heimild: Reykjavik.is