Home Fréttir Í fréttum Eykt hlýtur Umhverfisverðlaun Terra

Eykt hlýtur Umhverfisverðlaun Terra

184
0
Gunnar Friðriksson, viðskiptastjóri Terra umhverfisþjónstu, Valgerður S. Vigfúsdóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar Terra umhverfisþjónustu, og Heiðdís Búadóttir, umhverfisstjóri Eyktar, við afhendingu umhverfisverðlaunanna

Eykt ehf hefur hlotið umhverfisverðlaun Terra umhverfisþjónustu 2022 fyrir framúrskarandi, markvissan og eftirtektarverðan árangur og ábyrga stefnu í umhverfismálum.

<>

Nú um síðastliðin áramót tóku í gildi lagabreytingar sem skikka fyrirtæki til að flokka úrganga í sjö flokka, en þess má geta að hjá Eykt þurfti enga lagabreytingu til að bæta flokkun þar sem fyrirtækið hefur lagt mikla áherslu á þennan málaflokk.

Mikil áhersla er lögð á úrgangsstjórnun hjá fyrirtækinu og starfar það eftir ISO9001 gæðastaðli. Eykt hefur náð þeim eftirtektarverða árangri að ná endurvinnsluhlutfallinu í rúmlega 90% og er markmið þeirra að ná enn betri árangri á árinu.

„Terra umhverfisþjónusta vill hvetja fólk og fyrirtæki til þess að flokka og endurvinna betur. Úrgangur er ekki bara úrgangur heldur er um verðmæti að ræða sem er mikilvægt að fara vel með og ná honum aftur inn í hringrásarhagkerfið. Umhverfisverðlaunin er hvatning til að gera betur.

Hlutverk Terra umhverfisþjónustu er að vinna með fyrirtækjum, opinberum aðilum og einstaklingum, sem þjónustuaðili og ráðgjafi. Við komum síðan að söfnun úrgangs og komum honum í réttan farveg til endurnýtingar og endurvinnslu,“ segir Valgerður S. Vigfúsdóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar Terra umhverfisþjónustu.

Heimild: DV.is