F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ævintýraborgir – Eggertsgata. Endurgerð lóðar, útboð nr. 15707
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið fellst í endurbótum á svæði/lóð fyrir tímabundið mannvirki undir heitinu ævintýraborgir – hér nefnt Ævintýraborg Eggertsgata – við Eggertsgötu 35, 102 Reykjavík. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á lóðinni fyrir leik barna.
Stærð framkvæmdasvæðisins er um 5.300 m².
Helstu verkliðir eru jarðvinna og landmótun, upptaka á malbiki og malbikun, frágangur hellulagðra svæða, kanta, þrepa og ræktunarsvæða, uppsetning stálrimlagirðinga og hliða, uppsetning leiktækja og frágangur kringum leiktæki, þ.m.t. fallvarnarefni, yfirborðsmeðhöndlun á malbiki (línur og leiktákn) og lagning snjóbræðslulagna á afmörkuðu svæði lóðarinnar.
Helstu magntölur eru :
- Malbik og förgun 1.305 m2
- Grasþökur 1.000 m2
- Fallvarnar efni 580 m3
- Malbikun 75 m2
- Hellulögn 260 m2
- Stálrimlagirðingar (nýjar og endurnýttar) 175 m
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 28. apríl 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 15. maí 2023.