Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið:
MALBIKUN Í SVEITARFÉLAGINU HORNAFJÖRÐUR – 2023
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Um er að ræða yfirlagnir gatna, nýlagnir gatna og stíga ásamt viðgerðum á malbiki gatna í Sveitarfélaginu Hornafjörður. Framkvæmdarsvæðið er að mestu leyti innan þéttbýlis Hafnar.
Verkinu skal lokið fyrir 20. September 2023.
Helstu magntölur fyrir árið 2023 eru:
- Yfirlagnir gatna 10.500 m2
- Nýlagnir gatna og stíga 1.500 m2
- Malbiksviðgerðir 200 m2
- Jöfnunarlag 150 m2
Útboðsgögn
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds frá og með föstudeginum 21. Apríl 2023, með því að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið elins@efla.is, afrit send á utbod@hornafjordur.is. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Malbikun í sveitarfélaginu Hornafjörður – 2023“.
Útboðsgögn sundurliðast eftirfarandi:
- Útboðs- og verklýsing (pdf)
- Tilboðsbók ásamt tilboðsskrá (xlsx)
Tilboð
Tilboð skulu hafa borist til Eflu verkfræðistofu, að Lynghálsi 4, 110 Reykjavík eða, með tölvupósti á netfangið elins@efla.is (afrit á utbod@hornafjordur.is), eigi síðar en föstudaginn 5. maí 2023, kl. 13.00.