Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) um Dynjandisheiði, áfangi 2. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 12,6 km kafla. Vegurinn er að mestu byggður í nýju vegsvæði en að hluta í núverandi vegsvæði.
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 18. apríl 2023, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í
útboðinu. Eitt tilboð barst og uppfyllti bjóðandi hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.