Home Fréttir Í fréttum 23.05.2023 Grassláttur á Suðursvæði 2023-2024

23.05.2023 Grassláttur á Suðursvæði 2023-2024

72
0

Vegagerðin býður hér með út grasslátt á Suðursvæði árin 2023 og 2024. Meðal annars er um að ræða svæði við Vesturlandsveg, Suðurlandsveg, Breiðholtsbraut, Reykjanesbraut, Hafnarfjarðarveg, Arnarnesveg, Fjarðarhrauni, Strandgötu og Garðskagaveg.

<>

Áætlað magn grassláttar er samtals 1.545.084 m2 á ári í fjórum umferðum.

Gildistími samnings er til 15. september 2024. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 21. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. maí 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign