Home Fréttir Í fréttum 09.05.2023 Vegbleyting og þvottur jarðgangna 2023-2026, þjónustusvæði Ísafjarðar

09.05.2023 Vegbleyting og þvottur jarðgangna 2023-2026, þjónustusvæði Ísafjarðar

95
0
Mynd/Bæjarins Besta

Vegagerðin býður hér með út vatnsdreifingu og þvott jarðgangna á svæði Ísafjarðar. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í 3 ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára.
Helstu magntölur eru:

<>
  • Heildarakstur vörubifreiðar í vegbleytingu er áætlaður 5.900 km á ári
  • Fjöldi vinnustunda vörubifreiðar í þvotti jarðgangna er 250 klst. á ári

Verkið skal að fullu lokið 30. nóvember 2026.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 7. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign