Vegagerðin býður hér með út hreinsun niðurfalla og svelgja á Höfuðborgarsvæðinu og Suðursvæði (ásamt Hvalfjarðagöngum) með holræsahreinsibíl og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.
Helstu magntölur fyrir hvert ár eru:
- Hreinsun niðurfalla 2.000 stk.
- Hreinsun svelgja 50 stk.
- Hreinsun fráveitulagna 40 klst.
- Myndun fráveitulagna 250 m
- Sérverkefni, viðbótarverk, holræsahreinsibíll 30 klst.
Verkinu skal að fullu lokið 31. maí 2026.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 7. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí 2023
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign