Home Fréttir Í fréttum 05.04.2023 Hringvegur (1) um Ölfusá – Hönnun og framkvæmdir

05.04.2023 Hringvegur (1) um Ölfusá – Hönnun og framkvæmdir

209
0
Teikning af nýrri Ölfusárbrú austan Selfoss. GRAFÍK/VEGAGERÐIN.

Vegagerðin býður hér með áhugasömum aðilum að leggja fram beiðni um þátttöku í samkeppnisferli með samningaviðræðum, sbr. gr. 36. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, vegna hönnunar og smíði nýrrar strengjabrúar yfir Ölfusá með tengivegum og brúm.

<>

Þetta verkefni felur í sér ítarlega hönnun og smíði kaðalsbrúar, nýrrar 3,7 km 4 akreina þjóðvegar með öllum tengivegum og brúm auk allra neðanjarðarveitna.

Óskað er eftir umsóknum frá fyrirtækjum eða hópum fyrirtækja sem hafa reynslu og þekkingu á brúm og vegagerð í samræmi við útboðslýsingu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 3. mars 2023  og skal umsóknum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn  5. apríl 2023.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.