Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) Um Dynjandisheiði, áfangi 2. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 12,6 km kafla. Vegurinn er að mestu byggður í nýju vegsvæði en að hluta í núverandi vegsvæði.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 15. júlí 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2023.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Fimmtudaginn 13. apríl 2023 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.