Home Fréttir Í fréttum 15.03.2023 Gerð á nýrri götu að Hellisbraut í Reykhólahreppi

15.03.2023 Gerð á nýrri götu að Hellisbraut í Reykhólahreppi

198
0
Reykhólahreppur. Mynd: Mbl.is

Reykhólahreppur óskar eftir tilboðum í verkið;

<>

Reykhólahreppur – Hellisbraut

Verkið felur í sér gerð á nýrri götu að Hellisbraut í Reykhólahreppi

Verktaki skal jarðvegsskipta götustæðum samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu og vatnsveitu og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annarra veitulagna.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur                                                    1.300 m³
  • Styrktarlag og fylling í lagnaskurði             1.100 m³
  • Fráveitulagnir                                             400 m
  • Vatnsveitulagnir                                          120 m

Verkið skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31. júlí 2023

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 2. mars 2023

Beiðni um afhendingu gagna skal send á netfangið sveitarstjori@reykholar.is

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi þann 15. mars kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.