Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela umhverfissviði að bjóða út áframhaldandi uppbyggingu og innréttingu á nýjum leikskóla í Helgafellslandi.
Umhverfissvið ásamt rýnihópi ráðgjafa, hönnuða og fulltrúa fræðslu- og frístundasviðs höfðu áður fengið það verkefni frá bæjarráði að endurskoða hönnun leikskólans með það að markmiði að lækka áætlaðan byggingakostnað við verkið, sem forsendu þess að áfram yrði haldið með uppbygginguna.
Kostnaðarramminn lækkaði þannig um 15% einkum með því að breyta efnisvali og búnaði.
Heimild: Mos.is